Jazz goðsögnin Nat King Cole heiðruð í sönnum desemberanda
Björtu loft í Hörpu 14.desember – miðasala hefst fljótlega
Þór Breiðfjörð – söngur
Ásgeir Ásgeirsson – gítar
Kjartan Valdemarsson – píanó
Jón Rafnsson – kontrabassi
Í þessum kvartett heiðra þeir Þór Breiðfjörð og félagar Nat King Cole tríóið og flytja jólaperlur sem eru fyrir löngu orðnar ódauðlegar; The Christmas Song, O little town of Betlehem, O Holy Night o.fl. en auk þess mun andi helstu flauelsbarka á borð við Michael Bublé, Bing Crosby, Sinatra og Tony Bennet einnig svífa yfir vötnum.
Þetta er fullkomin leið fyrir bæði djassunnendur og jólabörn að vinda sér upp á toppinn á Hörpu í frábæran djassklúbb með útsýni yfir næturhimininn og láta jólastressið líða úr sér við endalaus ljúf lög sem allir þekkja. Hver veit nema norðurljósin dansi með.
Þór hefur til margra ára verið einn af okkar helstu “crooner”-söngvurum og gaf m.a. út fyrir nokkrum árum plötuna Jól í stofunni og þar sveif andi aflauelsbarkanna svo sannarlega yfir vötnum. Diskurinn hlaut feikna góðar viðtökur, en á honum mátti heyra þekkt jólalög auk tveggja nýrra í flutningi Þórs Breiðfjörð, m.a. lagið “Hin fyrstu jól” eftir Ingibjörgu Þorbergs, sem við þekkjum vel með texta Kristjáns frá Djúpalæk, sem á þessum diski er flutt með upprunalega textanum sem var eftir Ingibjörgu sjálfa og bar nafnið “Beautiful Christmas Time”.