Tríó NOR

Trio_Nor Á efnisskránni eru þekktir djass standardar eftir Henry Mancini, Horace Silver, Erroll Garner, Antonio Carlos Jobim o.fl. í skemmtilegum útsetningum. Stíllinn er á suðrænum nótum en einnig heyrast áhrif frá klassískri tónlist og djasstónlist.  

 

Ómar Einarsson nam bæði klassískan gítar og djassgítarleik við djassdeild FÍH og lauk þaðan prófi árið 1990. Hann hefur sótt námskeið vestanhafs, m.a. hjá John Abercrombi. Einnig hefur hann leikið með fjölmörgum af kunnustu djassleikurum hér á landi.

Jakob Hagerdorn-Olsen er menntaður gítarleikari og kennari frá Det kongelige danske musikkonservatorium og Det fynske musikkonservatorium, hann lauk prófi 1986. Jakob fluttist til Íslands 1996 og nam djassgítarleik hér á landi við FÍH.

Jón Rafnsson stundaði hann klassískt tónlistarnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og svo framhaldsnám í kontrabassaleik hjá Thorvald Fredin í Stokkhólmi, auk þess að ljúka tónlistarkennaraprófi frá SMI (Stockholms musikpedagogiska institut).

Bókanir: 
Jón Rafnsson :  8633177 – jon@jrmusic.is 
Ómar Einarsson : 8220716 – omar@nyva.is 
Jakob Hagedorn-Olsen : 8642258 – jahomusic@gmail.com